ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og sérstaklega þá kafla sem hann las upp úr ræðu hæstv. ráðherra Ingu Sæland. Ég vona sannarlega að hann haldi áfram að lesa upp úr ræðum Ingu Sæland því að þær gera allar ræður hans betri, miklu betri. Og ég tala nú ekki um ef hann tæki nú eitthvað upp af málefnum Flokks fólksins, ég tala nú ekki um þegar það snýr að landsbyggðinni.
En aftur að þessu máli: Það er auðvitað þannig að þessi sala var ekkert endilega okkar forgangsmál, alls ekki. Það eru önnur mál, það eru landsbyggðarmálin, það eru málefni eldri borgara, sjávarútvegsmálin, en við það að taka þátt í þessari góðu ríkisstjórn þá var þetta einfaldlega samningsatriði. Og í öðru lagi þá er það svo að það var búið að gera hér fjárlög fyrir þetta ár og gera ráð fyrir þessum fjármunum og þá hefði einfaldlega þurft að taka það verk allt upp. Við ákváðum að taka þátt í þessari sölu, styðja hana með stærri hagsmuni að leiðarljósi, þ.e. hag landsins, þó svo að við teljum að það sé eitt og annað í fjármálakerfinu sem þurfi endurskoðunar við, m.a. gríðarlegur bankakostnaður, mikill vaxtamunur og það er það sem við þurfum hér í þessum sal að einbeita okkur að en ekki einhverju svona pólitísku spaugi eða kerskni, sem er vissulega skemmtileg og gerir a.m.k. ræður hv. þm. Sigurðar Inga Jóhannssonar miklu betri.