156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[16:32]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér láðist að svara hv. þingmanni í fyrra andsvari varðandi það að við í Framsókn gætum tekið mál Flokks fólksins og gert að okkar. Ég hef nú akkúrat séð hið gagnstæða og las nú einmitt um samfélagsbankann, Landsbankann. Ég hef hins vegar ekkert séð í stjórnarsáttmálanum um það þannig að Flokkur fólksins virðist hafa gefið afslátt af því að selja Íslandsbanka, án þess að gera kröfu um að Landsbankinn yrði gerður að samfélagsbanka. Ég sá líka að í kosningabaráttunni vorum við með sambærilegar hugmyndir um að taka upp lánafyrirkomulag með óverðtryggð lán, sem er mjög gott mál og ég hef lagt fram þingsályktunartillögu sem hvetur ríkisstjórnina til þess og fjármálaráðherrann. Ég hef fengið svar. Ríkisstjórnin ætlar ekki að gera neitt í því, ekki neitt. Það væri áhugavert að sjá Flokk fólksins taka aðeins af skarið í ríkisstjórninni og sýna fram á að þau séu einn þriðji af ríkisstjórninni og koma því áfram því að það væri skynsamlegt að reyna að koma slíku fyrirkomulagi á á fjármálamarkaði. Ég er sammála hv. þingmanni um það.