156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[16:42]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir ræðuna. Það kemur mér ekkert á óvart, hafandi þekkt til hv. þingmanns og fylgst með honum í töluverðan tíma, að ég og hv. þingmaður erum ekki ósammála um grundvallaratriði eins og að umbylta þeim fjármunum sem liggja í bankanum í einhverja aðra innviði sem nýtast betur í ríkisrekstrinum, hvort sem það er þá að greiða niður skuldir eða eitthvað annað sem eðlilegt er að ríkið beri ábyrgð á. En við ræðum hér lögin um það hvernig eigi að framkvæma slíka sölu og eins og kom ágætlega fram í umræðum áðan þá var það nú svo að hv. þm. Guðbrandur Einarsson, sem skilaði sérstöku nefndaráliti þegar þau lög sem hér eru til umfjöllunar, örlítið breytt með þessari umræddu C-bók, komu fyrir þingið á síðasta kjörtímabili, og þá virtist hvorki hv. þm. Guðbrandur Einarsson né aðrir þingmenn Viðreisnar sem tjáðu sig um þau lög vera sátt við þessa umgjörð. Óháð því veit ég að ég og hv. þingmaður erum sammála í grundvallaratriðum um að það sé gott að selja Íslandsbanka. En ramminn í kringum söluna; nú eru hv. þingmaður og þingflokkur hans, geri ég ráð fyrir, orðin mjög sátt við það frumvarp sem fyrrverandi hæstv. fjármálaráðherra mælti hér fyrir, bara undir lok síðasta kjörtímabils, um það hvernig ætti að selja bankann þrátt fyrir öll þau stóru orð sem féllu bæði hér í þingsal og annarri fjölmiðlaumræðu í kjölfarið.