156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[16:44]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég las reyndar umrætt álit hv. þm. Guðbrands Einarssonar og fannst það ekki sérlega stóryrt. En skoðun mín liggur náttúrlega fyrir í nefndaráliti meiri hluta. Þar er mín undirskrift undir og í því felst auðvitað að ég styð það frumvarp sem þarna er lagt fram. Ég gæti þá auðvitað með sama hætti spurt hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur á móti: Af hverju er enginn frá hennar flokki á umræddu nefndaráliti, fyrst um er að ræða frumvarp sem var samið af síðustu ríkisstjórn? Fyrst að hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson kom hérna stoltur og sagði: Þetta er frumvarpið mitt sem ég samdi hérna, ég styð það heils hugar auðvitað. En engu að síður treystir sér enginn frá hans flokki að rita undir meirihlutaálitið. Ég spyr hv. þingmann á móti: Ef þetta er svona gott mál, ef við erum svona skrýtin að fallast á þetta, af hverju treysti sér þá enginn frá flokkum fyrri ríkisstjórnar, sem samdi frumvarpið og hafa stolt talað fyrir því hér, til að rita undir? Ekki kom neitt annað minnihlutaálit á móti. Ekki kom fram einhver ástæða: Ókei, þetta er gott mál en við hefðum viljað sjá þessu breytt eitthvað öðruvísi. Það kom ekki fram. Ég varð ekki var við neina þannig umræðu og án þess að greina frá umræðum í nefndinni þá hefði t.d. verið hægt einhvern veginn að koma sér saman um að við myndum þá semja um eitthvað annað. Það er auðvelt að segja að á síðasta kjörtímabili hafi menn setið hjá og gert eitthvað svoleiðis en Viðreisn lagðist auðvitað ekki gegn þessu frumvarpi eða fyrri útgáfu á því. En ég spyr bara: Ef þetta er svona frábært mál, af hverju treystir sér enginn frá Sjálfstæðisflokknum eða Framsóknarflokknum til að rita undir þetta meirihlutaálit?