156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[16:46]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og reyndar líka spurninguna. Það er bara gaman að því að þetta geti orðið samtal okkar á milli. Það er auðvitað fyrst að segja að það er enginn skyldugur til að taka undir nefndarálit meiri hlutans. En það hefur alveg legið fyrir hér frá því að þetta mál kom í 1. umræðu, að Sjálfstæðisflokkurinn styður sölu Íslandsbanka. Hér erum við í rauninni að fjalla um lagaverkið í kringum það. Það er að einhverju leyti svolítið hjákátlegt að lög frá 2012 sem voru saman í tíð vinstri stjórnarinnar og við tókum svo þátt í á síðasta kjörtímabili að selja í samræmi við þau lög. Ýmislegt fór úrskeiðis. Við komum með breytingu á þeim lögum og nú hyggst hæstv. ríkisstjórn selja samkvæmt þeim lögum sem þau voru þó algjörlega ósammála og töldu ýmislegt vanta. Í umræðunni um þau lög, þegar hæstv. þáverandi ráðherra, Sigurður Ingi, kom með málið inn, þá kalla hér bæði fulltrúar Viðreisnar og ég tala nú ekki um fulltrúa Samfylkingarinnar, en sérstaklega auðvitað Flokks fólksins, að það væri verið að taka alla ábyrgð frá þinginu og setja alla ábyrgð yfir á ráðherrann. Það er það sem ég vakti athygli á í 1. umræðu, að við værum að toga þingið svolítið frá. Það er ekkert nýtt sem kemur hér fram við þessa umfjöllun um það hvernig þingið á að hafa eftirlit með sölunni og ég fór í andsvar við hv. þingmann, formann hv. efnahags- og viðskiptanefndar áðan og mig furðar raunverulega, í samræmi við þá umræðu sem átti sér stað hjá þessum flokkum þá, að í nefndinni hafi ekki komið einhver krafa um það. En í grundvallaratriðum erum við sammála því að selja Íslandsbanka. Ég set reyndar spurningarmerki við þennan C-flokk og ég mun fylgjast mjög spennt með því hvernig það mun takast til. En ég verð að viðurkenna að mig sætir furðu að núverandi ríkisstjórn ætli að setja ábyrgðina alla yfir á ráðherrann og að hv. efnahags- og viðskiptanefnd hafi ekkert skrifað inn einhverjar breytingartillögur, einhver bráðabirgðaákvæði, kallað eftir skýrslugjöf hvernig þessari sölu mun reiða af. En ég skal alveg fullvissa hv. þingmann um að það mun ég gera. En ég bíð spennt eftir og vona auðvitað að þetta söluferli gangi vel (Forseti hringir.) því að það er ekkert rétt að ríkið sé að eiga svona stóran hluta í fjármálakerfinu og ég fagna því (Forseti hringir.) sérstaklega að þeir flokkar sem mynda ríkisstjórnina séu farnir að taka undir það grundvallarsjónarmið.