ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætt andsvar. Ég tek alveg undir með hv. þingmanni að það á ekkert endilega að draga mikið úr trausti þó að þingmenn hafi tjáð sig um það og vitað sé að þeir séu ekki endilega með sína pólitísku sannfæringu í að selja fjármálastofnanir. En eins og á við væri alveg óhætt að líkja Vinstri grænum og Flokki fólksins saman, ég tek alveg undir það.
Það sem ég er kannski meira að vísa í er hversu stóryrtir þingmenn Flokks fólksins og stjórnarandstöðunnar voru almennt á síðasta kjörtímabili og hversu langt þau voru til í að ganga með yfirlýsingar og annað slíkt. Það er kannski það sem mér finnst vera meginmunurinn þar á og ástæðan fyrir því að ég er að taka þetta hér upp — og hvað þau hafa verið skýr um að afstaðan sé ekkert breytt þó að þau hafi látið þetta yfir sig ganga. Það er kannski meira það sem ég er að vísa í.
Ef ég kem að síðari spurningunni, hvað mér finnst þetta helst hafa verið, þá held ég að það sem hafi byrjað að keyra upp þá miklu tortryggni og umræðu sem var hafi verið þessi óánægja sem kom upp strax að loknu útboði. Fólk áttaði sig ekki á því hvernig því var skipt á milli flokka, að vera fagfjárfestir eða ekki fagfjárfestir, og upplýsingarnar um það frá Bankasýslunni komu mjög seint. Um leið og upplýsingarnar komu þá róuðust mjög margir sem voru áður óánægðir en þá var umræðan farin af stað sem vatt svo upp á sig um að það hafi ekki neitt verið gert. Svo í framhaldi af því kom í ljós að þeir sem sáu um söluna, (Forseti hringir.) m.a. Íslandsbanki og annað, fóru ekki eftir reglunum og voru sektaðir fyrir vikið og það var ekki heldur traustsins vert, sem kom þá ofan í umræðuna sem hafði verið.