ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni kærlega fyrir hans svar. Mín skoðun er sú að þetta sé dæmi um að hugmyndin um mjög litlar og vanmáttugar ríkisstofnanir eins og Bankasýsluna sé ekki endilega góð. Það er ekki gott að setja svona mikla ábyrgð á hendur stofnanna sem eru eðli máls samkvæmt smáar og ekki endilega burðugar til að sjá um svona hluti. En það er nú annað mál. Ég kann alveg vel að meta skýringar hv. þingmanns á því sem fór úrskeiðis í því ferli.
Mig langar samt að nefna — og ég vil nú ekki gera þetta nefndarálit að aðalatriði en hér er fólk að draga svolítið fram: Hvað sagði fólk í stjórnarandstöðu og hvað segir það nú? Fólk í stjórnarandstöðu er dálítið óbundið af því sem það hefur samið um í stjórnarsamstarfi. Þá lýsir það bara sinni einlægu sannfæringu fyrir hlutum án þess að þurfa að velta fyrir sér ábyrgð á stöðu ríkisfjármála o.s.frv. Þess vegna velti ég aðeins fyrir mér, af því að þingmaðurinn lýsir í rauninni yfir eindregnum stuðningi við sjálfa hugmyndina um áframhaldandi sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hvers vegna hann hafi ekki verið með á umræddu nefndaráliti? Var það bara strategísk ákvörðun hjá Sjálfstæðisflokknum að vera ekki með á neinu nefndaráliti til að láta stjórnarflokkana bera fulla ábyrgð á sölunni og þurfa síðan ekki að svara fyrir eitthvað ef eitthvað fer úrskeiðis? Ég get alveg skilið þá afstöðu. Það væri bara gott að fá hana fram. Kom ekki til greina að koma með eigið nefndarálit þar sem bent væri á hvað það var í umræddu nefndaráliti sem þingmaðurinn gat ekki sætt sig við? Eða er eitthvað í umgjörðinni sem hefði verið þannig að þingmaðurinn hefði getað tekið þátt í því að vera með á sameiginlegu nefndaráliti þá vonandi allrar nefndar?