156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[17:17]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar hér sem er bara málefnalegt og gott. Ég vil byrja á að segja að það var svolítið framkvæmdin hjá söluaðilunum sem Bankasýslan samdi við, eins og Íslandsbanka, sem fór úrskeiðis. Ég veit ekki til þess að framkvæmd sölunnar og fjármálagerningurinn sjálfur af hálfu Bankasýslunnar hafi klikkað. Ég held að það hafi bara heppnast mjög vel og Bankasýslan geti bara verið stolt af sínu verki við söluna og hvað fjármálagerningurinn og salan gekk gríðarlega vel og hvað við fengum hátt verð, hvernig eftirspurnin var og hvernig þetta gekk allt saman. Það voru frekar þeir aðilar sem samið var við sem fóru ekki eftir þeim lögum og reglum sem þeir áttu að gera í þeim hluta sem þeir sáu um fyrir hönd Bankasýslunnar — sem fór úrskeiðis og var sektað fyrir, svo það sé alveg sagt hér og á hreinu. Svo getum við alveg haft almenna skoðun á því hvort stofnanir geti verið of litlar og annað. Ég get tekið undir það með hv. þingmanni þótt það hafi kannski ekki átt við í þessu tilfelli.

En af hverju eru fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ekki á þessu nefndaráliti og er það strategískt? Nei, ég kom inn á það áðan að fjármálaráðherrann okkar þáverandi kom að því að semja þau lög sem voru samþykkt, og við komum að því, þar sem er gert ráð fyrir söluferlinu alveg eins og við erum að samþykkja í dag nema þá var bara tilboðsbók A og B. Nú er verið að bæta hér við tilboðsbók C. Það kom fram í vinnslu nefndarinnar að það væri enn þá svolítið huglægt hvernig þetta væri þarna á milli og það er ekki alveg brugðist við því. Ég bara ákvað að standa frekar með því ferli sem var ákveðið (Forseti hringir.) af fyrri ríkisstjórn, af því að ég var ekki alveg sannfærður um að (Forseti hringir.) þessi breyting væri alveg fullkomlega útfærð, og ákvað því að vera ekkert á nefndarálitinu án þess að tefja framgang þessa máls nokkuð.