156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[17:24]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Herra forseti. Ég ætlaði að koma bara stutt inn í þessa umræðu. Það er auðvitað fyrst og fremst fagnaðarefni að hér sé verið að halda áfram því mjög mikilvæga verkefni að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka. Það er mjög mikilvægt fyrir samfélagið að ríkið sé ekki með eignarhald í bönkum af mörgum ástæðum. Ég vona að það verði þannig hjá hæstv. ríkisstjórn að þessum fjármunum verði forgangsraðað í að greiða niður skuldir. Það væri æskilegasta samsetning þessarar gjörðar fyrir samfélagið að losa um eignarhald ríkisins í Íslandsbanka en nota það til að greiða niður skuldir. Það væri að mínu viti farsælasta lausnin.

Það er gleðilegt, verð ég að segja, að standa hér í þessum þingsal og ræða sölu á Íslandsbanka. Það verður að viðurkennast að orðræðan og lýsingarorðin og stemningin almennt er nú yfirvegaðri heldur en var hér oft á tíðum þegar við ræddum þetta mál á fyrra kjörtímabili. Sú umræða var um margt áhugaverð þó að ekki sé dýpra í árinni tekið, herra forseti, kannski að einhverju leyti skiljanleg og að einhverju leyti alls ekki og að einhverju leyti bara mjög skaðleg þar sem það var bæði verið að drepa á dreif staðreyndum mála eða jafnvel bara fara ekki satt og rétt með og eðlilegustu atriði málsins gerð mjög tortryggileg. Ástæðan fyrir því að ég set þetta hér á dagskrá, herra forseti, er að það er áhyggjuefni fyrir samfélag ef einstaka þættir sem kannski hljóma flóknir, hljóma jafnvel illa — en að í pólitískri umræðu, jafnvel bara umræðu hér inni, náist ekki að tala um hlutina eins og þeir stundum þurfa að vera burt séð frá því hvernig þeir hljóma. Það býr til ákveðna tortryggni og ég held að það allra versta sem gæti gerst í máli af þessu tagi væri að það verði í rauninni svo pólitískt erfitt að koma ákveðnum skilaboðum í gegn að fólk almennt veigri sér við því. Undir eru bara of miklir hagsmunir.

Ég gæti auðvitað staðið hér, herra forseti, og rakið hið ýmsa sem var fullyrt í þessari pontu, jafnvel af hálfu hv. þingmanna hæstv. fjármálaráðherra og flokksmanna hans á sínum tíma. Ég ætla svo sem ekki að gera það en það blasir við að margt sem var sagt þá stenst auðvitað enga skoðun, hefur þvert á móti bara elst vel hvað varðar það mál sem þá var undir og þær ákvarðanir sem þá voru teknar. Alls konar umræður um meinta afslætti eða gjafagerninga, öll þau ummæli eldast ekki vel, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Bara til að nefna fyrir samhengið: Þessi afsláttur, sem að mig minnir var rætt um í marga daga í þinginu sem einhvern mesta skandal sem hafi sést í íslensku viðskiptalífi, hvorki fyrr né seinna að mig minnir, var langtum minni en meðaltal viðlíka afslátta í Evrópu á þessu tímabili. Með þeim rökum sem var haldið fram þá má segja að í þessari sölu sem blasir nú við verði afslátturinn miklu, miklu meiri. Þetta nefni ég bara af því að hér er mikið undir og við verðum að hafa bolmagn — ég veit ekki alveg hvaða orð ég á að nota, frú forseti. Sumt í lífinu og sumt sem við sýslum við hér er bara mjög flókið. Það er ekki öllum gefið eða ekkert endilega tamt að tala um hvað sé afsláttur frá dagslokagengi og hvað sé eftirmarkaður og hvað sé breytt eignarhald og hvað sé alls konar og það er mjög auðvelt að gera allt tortryggilegt. En við verðum að reyna að standa undir því til þess að svona mikilvægar aðgerðir eins og þessi sala er og að hún sé gerð með sem bestu móti — að til þess að hún geti yfirleitt gengið upp í íslensku samfélagi núna og til framtíðar að þá vitum við alveg hvernig pólitíkin er. Ef fólk hreinlega treystir sér ekki í umræðuna, treystir sér ekki til þess að útskýra að það sem hljómar kannski illa er ekkert vont, þá hættum við að gera þessa hluti. Það væri vond niðurstaða fyrir samfélagið.

Þess vegna fagna ég því að við erum hér að ræða þetta mál núna hérna í þessari umræðu á þeim nótum sem við erum að gera, sem eru bara góðra gjalda verðar. Ég fagna því mjög að þetta mál hafi ekki goldið fyrir það að meira en það gerði á sínum tíma í því samhengi að hér á enn að klára þessa sölu og það er mjög gott og mikilvægt þannig að við í Sjálfstæðisflokknum bara fögnum því. Við munum styðja við þá vegferð og höfum bara haldið okkar málefnalegu sjónarmiðum á lofti í því og þeir sem vilja glöggva sig á þeim ummælum sem féllu hér um hið ýmsa sem var snúið á alla kanta á versta veg — vonandi er þingheimi núna ljóst að það var ekki ástæða til þeirra gífuryrða sem voru látin falla á sínum tíma. Ég ætla ekki að rekja það hér en það er samt mikilvægt að við notum tækifærið til að minna okkur á hvað það munar stundum litlu að bara vegna kannski hitans í umræðunni þá stundina, pólitísku tækifæranna þá stundina — þá getum við gloprað frá okkur mjög mikilvægum tækifærum, verkefnum og aðgerðum því það verður bara pólitískt of erfitt, ekki út af því að það er í alvörunni of pólitískt erfitt heldur bara skynjunin er sú og hún verður of pólitískt erfið. Ég leyfi mér því að koma hingað upp, frú forseti, til þess að nefna þetta.

Að því sögðu fagna ég því að hæstv. ríkisstjórn ætli að halda þessari vegferð áfram. Ég verð að lýsa ákveðinni furðu minni yfir því að einn flokkurinn í ríkisstjórninni skuli með mjög afgerandi hætti standa hér í þessari pontu og segjast vera alfarið á móti sölu á Íslandsbanka, að öllu leyti, finnist það hið versta mál en ætli samt að greiða atkvæði með því þar sem það sé bara partur af því að vera í ríkisstjórn. Gott og vel. Ég er síðasta manneskjan til að gera lítið úr því. Að vera með völd í nútímasamfélagi krefst þess einfaldlega að þú miðlir málum. En auðvitað er það algjörlega stórmerkilegt að einn þriðji ríkisstjórnarinnar standi hér og segi að þetta sé ofboðslega vond hugmynd en ætli sér þess vegna vera á grænu neii eins og við segjum.

Frú forseti. Ég fagna því að málið sé komið á þennan stað. Það er mjög mikilvægt að þessi sala verði kláruð og ég ætla að leyfa mér að segja einu sinni enn: Ég vona að við munum ekki gleyma því hvað það í rauninni munaði litlu að mjög ósanngjörn umræða um staðreyndir mála sem stóðust að mínu viti ekki að 95% leyti — hafi ekki orðið til þess að pólitíkin veigraði sér frá því að stíga þetta mjög mikilvæga skref og ég fagna því.