156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[17:33]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætla að leggja nokkur orð í belg varðandi þetta frumvarp og þetta nefndarálit, ekki það að ég hafi — ég játa að ég hef ekki kynnt mér málið til hlítar, alls ekki. Ég ætla bara að fara almennt í þetta í stuttu máli.

Í fyrsta lagi ef eignirnar gefa af sér, eins og einhver nefndi hér áðan — nú veit ég ekki hvort þessar tölu eru staðfestar — 20 milljarða á ári og hægt er að selja viðkomandi eign á 50 milljarða, ef þetta er eitthvað nálægt því að vera réttu tölurnar þá tel ég nú, án þess að ég hafi kannski reiknað út áhættuna eða áhættuþáttinn í þessu, augljóst að slíka eign, að öllu óbreyttu með áhættuna, á ekki að selja, ekki ef þú færð 20 milljarða á ári í arð og getur selt hlutinn á 50 milljarða, nema það sé um einhverja stórkostlega áhættu að ræða að eiga eignina áfram vegna þess að hún borgar sig augljóslega upp á tveimur og hálfu ári. Þetta er bara einföld skoðun manns sem hefur ekki reiknað þetta neitt út eða þekkir ekki málið ofan í grunninn. En þetta er augljóst að mínu mati. Hins vegar er ég alveg á því að ríkið á auðvitað ekki að taka þátt í, svona almennt séð að öllu óbreyttu, slíkum rekstri eins og bankarekstri. Það er mín skoðun. Að öllu virtu er ég hlynntur því að ríkið losi sig út úr slíkum rekstri eins og þessu með Íslandsbanka nema hann gefi svona vel af sér.

Annað sem ég ætlaði að segja er að ég er einnig hlynntur því að ríkið íhugi alvarlega að losa sig út úr ýmsum öðrum rekstri sem er plagandi, eins og t.d. rekstri Íslandspósts að einhverju leyti. Það gæti verið gott skref þó að ríkið yrði alltaf að taka á sig ábyrgð á póstþjónustu í dreifðum byggðum, taka á sig byrðina af því að veita þessa þjónustu í dreifðum byggðum. Þess ber þó einnig að geta að auðvitað er póstþjónustan öll að breytast mjög hratt með tilkomu þess að menn hafa samskipti í gegnum netið miklu meira en áður og bréfasendingar og slíkt eru orðnar mjög sjaldgæfar. Ég fæ t.d. ekki mikið af bréfum en það kemur þó fyrir þannig að kannski leysist það af sjálfu sér. En það er alger óþarfi fyrir ríkið að vera í slíkum rekstri ef það kemst hjá því og einkaaðilar geta leyst það af. Að öðru leyti má nefna kannski Isavia sem er rekstur sem ríkið gæti hugsanlega íhugað að selja og var nefnt hér í ræðu fyrr í dag. Varðandi Landsbankann þá tel ég að það mætti íhuga að selja hann þegar tímar líða fram. En við skulum sjá fyrst hvernig fram vindur með sölu Íslandsbanka, að framkvæmdin á þeirri sölu takist sæmilega til.

Ég ætlaði, frú forseti, kannski aðeins í lokin að nefna að fyrir þá sem hafa kannski einbeittir og einarðlega mælt á móti sölu á þessum banka, kannski bara fyrir nokkrum mánuðum síðan, þá er auðvitað kúnstugt og kannski erfitt fyrir viðkomandi stjórnmálaöfl eða stjórnmálamenn að þurfa síðan að kyngja því þegar þau koma í ríkisstjórn og þeir hafa komið hér upp í dag og skipta út með það. Menn þurfa auðvitað að meta hagsmuni sína þannig að þeir nái einhverju í gegn á móti. Það minnir okkur líka á það að menn skyldu kannski aðeins íhuga orðaval sitt þegar þeir eru með eða á móti málum svona almennt séð, þótt stjórnmálamenn séu kannski allra manna færastir í því að tala sig út úr slíkum vandræðum, sem er að verða algengt þegar skipt er svona ærlega um stjórn eins og núna. Allir þeir stjórnmálaflokkar sem eru í núverandi ríkisstjórn voru áður í stjórnarandstöðu, þ.e. fyrir einhverjum sex, sjö mánuðum síðan. Þannig að það er af mörgu að taka og margt að skoða. Þetta er auðvitað, frú forseti, skondið oft á tíðum. Menn hafa verið að lesa hér upp ræður sem eru ekki mjög gamlar þar sem menn voru alveg gallharðir á móti sölu Íslandsbanka. Ég er ekki að lýsa því yfir að ég sé á móti sölu Íslandsbanka, ég er bara einfaldlega að benda á að það er bara einfalt hagsmunamat, ef ríkissjóður er að fá svo mikið inn á hverju ári í arð að söluvirði upphefur það ekki á kannski tveimur, þremur árum, þá finnst mér augljóst að við eigum að eiga bankann áfram á meðan hann gefur svona vel. Ég er alveg á því. Hins vegar hef ég ekki farið ofan í tölurnar og ég þekki þær ekki og ég er ekki heldur sérfræðingur í áhættutökunni, þ.e. hversu mikil áhætta það er að eiga þennan hlut ef það kemur einhvers konar holskefla eða verðið lækkar skyndilega eða einhverjar hörmungar aðrar gerast. Aðrir menn eru sérfræðingar í því.

Ég ætlaði nú bara að leggja þetta inn í þetta mál og lýk þar með máli mínu.