156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[17:44]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég þakka þá góðu umræðu sem hefur átt sér stað í þinginu í dag um þetta mikilvæga mál. Þar hafa verið nefnd ýmis atriði sem mjög mikilvægt er að komi fram í umræðunni, þar með talið tímasetningu þessarar sölu. Í umræðu um málið hefur m.a. verið rætt um hvenær aðstæður á markaði séu heppilegar. Nú er það auðvitað svo að hvorki sá sem hér stendur né, að ég hygg, nokkur annar í þessum sal, sér fyrir hver þróun markaða gæti orðið, hver hún verður á morgun eða í næsta mánuði. Það er þess vegna ákaflega erfitt að sjá fyrir hvenær hentugur tími til að losa stöðu ríkisins í Íslandsbanka er. Ákveðnir hlutir eru þó nokkurn veginn ljósir; þegar selja á stærri hluta, eins og t.d. þann hlut sem ríkið á í Íslandsbanka, er almennt hægt að miða við að óheppilegur tími sé tími þar sem mikil hreyfing er á mörkuðum, sérstaklega þegar að óvissa er vaxandi og verð er fallandi. Það hefur einfaldlega með það að gera að þegar miklar hreyfingar eru á mörkuðum, að þá eru markaðir að jafnaði grunnir og þar af leiðandi erfitt að spá fyrir um það hvað miklar breytingar á framboði gætu kallað fram í verðbreytingum. Þannig hef ég m.a. nokkrum sinnum talað um glugga í þessu samhengi. Þegar talað er um glugga er einungis verið að ræða það að miðað sé við að stór sala fari fram á tíma þar sem ætla má að enginn undirliggjandi óvissa valdi því að markaðir séu óeðlilegar grunnir og þar með að framboðsaukningin leiði til mikilla verðhreyfinga, eða að fyrirséð sé að einhverjar meiri háttar upplýsingar sem gætu haft áhrif á markaðsverð eigi sér stað meðan á sölunni stendur. Það er markmið mitt og ríkisstjórnarinnar að gæta þess að þessu leyti að hagsmunir þjóðarinnar séu virtir með að reyna að tímasetja söluna þannig að aðstæður á markaði leyfi hana. Það munum við reyna að gera. — Ég þakka hv. þingmönnum fyrir uppbyggilega umræðu.