156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

afstaða ráðherra til gagnastuldar frá embætti sérstaks saksóknara.

[10:31]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Nýlegar fréttir af því hvernig fyrirtækið PPP komst yfir trúnaðargögn og hleranir í tengslum við rannsóknir sérstaks saksóknara og seldi upplýsingar og þjónustu til einkaaðila eru mikið áfall og hafa áhrif á traust þjóðarinnar til lögreglu og í raun réttarkerfisins alls. Sterkar vísbendingar eru um að hér sé um alvarlegt lögbrot að ræða en ég tek þó skýrt fram að eflaust eiga fleiri upplýsingar eftir að koma upp á yfirborðið. En þjóðin gerir eðlilega skýra kröfu um að réttarkerfið sé heiðarlegt og að traust til þess sé varðveitt.

Ég vil því spyrja hæstv. dómsmálaráðherra: Hver er afstaða hæstv. ráðherra til þeirra frétta sem fram hafa komið um trúnaðarbrest innan lögreglu og embættis sérstaks saksóknara? Og telur ráðherra að þetta mál sé vísbending um að íslenskt samfélag sé að þróast í þá átt að persónuvernd, réttaröryggi og traust til lögreglu sé í hættu?