156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

afstaða ráðherra til gagnastuldar frá embætti sérstaks saksóknara.

[10:35]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og það er bara gott að heyra þetta því að hér er ekki aðeins um að ræða alvarlegan trúnaðarbrest hjá opinberum starfsmönnum, núverandi og fyrrverandi lögreglumönnum, heldur einnig einmitt vísbendingar um kerfisbundna misnotkun valds og brot á friðhelgi einkalífs borgaranna. Gögnin voru ekki aðeins viðkvæm, þau voru hleranir, ljósmyndir og upptökur sem voru notaðar gegn einstaklingum sem höfðu ekkert gert annað en að nýta lögformleg réttindi sín til að sækja mál eða verja sig fyrir dómstólum. Þannig að viðbrögð yfirvalda hafa verið skref í rétta átt en traust þjóðarinnar er vissulega laskað. Ef fólk upplifir að gögn sem það trúir réttarkerfinu fyrir geti ratað til einkaaðila þá hefur verið brotið á grundvallarsamningi milli ríkis og borgara. Málið hefur því ekki aðeins áhrif á einstaka þætti löggæslu heldur snertir það grundvallaratriði í starfsemi framkvæmdarvaldsins sem varðar réttindi borgaranna og ábyrgð þeirra sem fara með opinbert vald.

Ég vil því að lokum spyrja hæstv. ráðherra: Telur ráðherra nauðsynlegt að Alþingi fái ítarlegar upplýsingar um stöðu málsins og um þau áform innan framkvæmdarvaldsins sem ráðherra hefur til að tryggja gagnsæi og réttaröryggi svo koma megi í veg fyrir slíkt endurtaki sig í framtíðinni?