framlög úr ríkissjóði til stjórnmálaflokka.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina en ég verð nú bara að viðurkenna að ég átta mig engan veginn á því í hvaða tölvupóst hv. þingmaður er að vísa. Staðan er einfaldlega þessi: Flokkur fólksins hefur fengið sínar greiðslur eins og aðrir, eins og Sjálfstæðisflokkurinn sem var ekki heldur að uppfylla þau lagalegu skilyrði sem lágu að baki því að heita stjórnmálaflokkur en ekki félagasamtök. Og til gamans má líka geta þess að í bankakerfinu okkar núna, þar sem við eigum að fylla út svokallaða áreiðanleikakönnun, er hvergi að finna möguleika fyrir neitt sem heitir stjórnmálaflokkur að uppfylla þau skilyrði að fylla út þá áreiðanleikakönnun, heldur er félagasamtökum eingöngu boðið að gera slíkt.
Ætli þetta megi ekki flokkast undir það að menn átti sig kannski ekki alveg á alvarleika málsins vegna að þessi löggjöf hafði verið í gildi og flokkar höfðu fengið — ekki bara Flokkur fólksins heldur og fleiri stjórnmálaflokkar. En hv. þingmaður getur verið afskaplega ánægður með að þessum málum hefur verið komið á eðlilegan rekspöl. Það eru allir glaðir í Flokki fólksins eins og í hinum flokkunum sem ekki höfðu formsins vegna fylgt þessum breytingum. Ég veit því ekki alveg á hvaða vegferð hv. þingmaður er núna í maí, þetta er að baki.
Við í Flokki fólksins, eins og hv. þingmaður segir: Jú, við erum afskaplega ánægð í þessari ríkisstjórn. Jú, við erum samstiga. Og jú, ég skil vel sárindi Sjálfstæðisflokksins að vera laus undan valdasprotanum. Og jú, við erum afskaplega fegin að vera einmitt laus við hann úr valdastóli.