framlög úr ríkissjóði til stjórnmálaflokka.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið þó svo að þessi smjörklípa með Sjálfstæðisflokkinn eigi enga innstæðu því að það var algerlega vitað árið 2022 að Sjálfstæðisflokkurinn uppfyllti strax skilyrði til þess að fá styrki.
Ég vil einnig spyrja hæstv. ráðherra hvort lög og reglur landsins skipti hann engu máli. Nú gerðist ráðherra nýverið sek um að skipa stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar í trássi við jafnréttislög en lét á sama tíma hjá líða að skipa stjórn Tryggingastofnunar ríkisins, eins og henni var skylt samkvæmt lögum. Þrátt fyrir að hafa fengið ítrekaðar ábendingar um ólögmæti þeirra athafna stóð hæstv. ráðherra fast á sínu og sagðist stolt af verkum sínum, með dyggum stuðningi hæstv. forsætisráðherra hér í ræðustól. Eru þetta þau vinnubrögð sem ráðherra boðar, að brjóta lög, þvertaka svo fyrir það og sjá ekki að sér fyrr en málin eru orðin fjölmiðlamatur?