156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

framlög úr ríkissjóði til stjórnmálaflokka.

[10:43]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn. Allt það sem við höfum verið að gera hefur verið í góðri trú. Það hefur aldrei verið einhver einbeittur brotavilji að ganga á svig við íslenska löggjöf enda, þegar eitthvað slíkt hefur komið upp á borð, höfum við einfaldlega leiðrétt það. Mig langar til að nefna sérstaklega Tryggingastofnun og þá stjórn. Það hefur frá fyrri ríkisstjórn nánast verið meginregla að eftir kjör hefur ráðherra dregið það í mismarga mánuði að skipa í stjórnir og eftir kosningar bæði 2017 af 2021 þá tók það á bilinu 4–7 mánuði að skipa í þessa stjórn. Það var í rauninni ráð frá mínu ráðuneyti að það væri kannski ekki tímabært að vera að framlengja lífdaga Tryggingastofnunarstjórnarinnar þegar frumvarp liggur hér fyrir á Alþingi um að fella hana lagalega á brott. En nú hefur verið tekið mark á því, eins og við gerum alltaf með bros á vör. Ef einhverjir vita betur þá lærum við af því og vinnum verk okkar, að vanda bjartsýn og brosandi eins og ég heyri að hv. þingmaður er. [Hlátur í þingsal.]