rannsókn á störfum ríkissaksóknara.
Virðulegur forseti. Ég ætla að leyfa mér að halda áfram umræðu sem hófst hér í óundirbúnum fyrirspurnum um hið svokallaða lekamál sem við fengum nú flest vitneskju um fyrir viku síðan með Kveiksþætti á RÚV og sáum áframhaldandi umfjöllun um umfang þessa leka, sem blasir við að er alveg gríðarlegur, í Kastljóssþætti í gær. Í framhaldi af þeirri umræðu sem fór fram hér áðan þá langar mig að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra — í ljósi þess að málið er, a.m.k. svona opinberlega, búið að velkjast um í eina viku, en af einmitt Kveiksþætti má ráða að einhver fórnarlömb þessa leka hafa nú fengið einhvern fyrirvara og vitneskju um málið — hvenær dómsmálaráðuneytið og lögreglan fékk vitneskju um lekann og umfang lekans, ef það liggur hreinlega fyrir hjá lögreglunni og ráðuneytinu. Mig langar líka að spyrja um hvort það hafi verið gerður einhver reki að því að ná utan um málið og umfangið. Hæstv. dómsmálaráðherra vísaði í svari áðan í óundirbúnum fyrirspurnum til eftirlitsnefndar með störfum lögreglu sem er auðvitað gott og gilt. Það er þó rétt að hafa í huga að þessir atburðir áttu sér stað löngu fyrir tíð þeirrar nefndar og sú nefnd er þeim takmörkunum háð að henni er falið að hafa eftirlit með störfum lögreglu en ekki t.d. ríkissaksóknara. En það hefur einmitt komið fram að málið hefur nú komið inn á það borð án þess að ríkissaksóknari virðist hafa haft áhuga á að reka lekamálið eða undanfara þess með einhverjum hætti. Þess vegna langar mig líka að spyrja sérstaklega hæstv. dómsmálaráðherra hvernig hún sér að fram fari einhvers konar rannsókn á þeim störfum ríkissaksóknara sem lúta að þessu máli.