rannsókn á störfum ríkissaksóknara.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hún nefnir réttilega orðið fórnarlömb. Ég er þeirrar skoðunar að fórnarlömb í þessu máli séu vissulega og sannarlega það fólk sem upplýsingarnar varða en fórnarlömbin í samhengi við traust og trúverðugleika kerfisins eru líka almenningur allur því að svona mál, þau hafa áhrif. Hv. þingmaður nefnir það hvenær ég eða dómsmálaráðuneytið höfum fengið upplýsingar um þetta mál. Hvað mig sjálfa varðar þá var ég upplýst um að þáttur yrði til umfjöllunar fyrir viku síðan. Ég vissi af því sama dag og umfjöllunin hófst að eitthvað með þessum hætti eða eitthvert mál yrði til umfjöllunar í Kveik. Þá vissi ég af þessu máli í fyrsta sinn. Þingmaðurinn spyr um eftirfylgni með þessu máli og hún skiptir máli. Það skiptir máli að fólk upplifi að svona mál fái skoðun. Það er staðreynd í málinu og Margrét Einarsdóttir lagaprófessor, formaður nefndar um störf með lögreglu, hefur lýst því yfir að strax eftir að þessi umfjöllun hófst hafi hún óskað eftir öllum gögnum og til greina komi að óska eftir frekari gögnum eftir þáttinn í gærkvöld og það liggur fyrir að ríkissaksóknari er með þetta mál núna til umfjöllunar og meðferðar. Ég er auðvitað ekki inni í því nákvæmlega hvað er þar til skoðunar en þessir tveir aðilar, opinberir aðilar sem fara með þessi mál, eru með þau til skoðunar núna og ég verð að segja að fyrstu viðbrögð ríkislögreglustjóra t.d., sem fjallaði um málið í gær, um það hvaða augum kerfið lítur þessi mál, finnast mér jákvæð. Mér finnst jákvætt að við heyrum það og skynjum að fólk er slegið yfir því að svona hafi getað hent og sé viljugt til þess og ætli að bregðast við í kjölfarið með raunverulegum og uppbyggilegum hætti.