156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

rannsókn á störfum ríkissaksóknara.

[10:49]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég gef afskaplega lítið fyrir það að fólk sé slegið yfir þessu máli. Að sjálfsögðu er fólk slegið. Öll þjóðin er slegin, þó það nú væri. Það er ekki bara eitthvert brot á prinsippum að þessum gögnum hafi verið lekið, eins og héraðssaksóknari, fyrrverandi sérstakur saksóknari, sagði þegar hann var að lýsa þessu máli í þættinum í gær. Brot á prinsippum? Þetta er brot á lögum og þetta er mjög alvarlegt brot. Ég kalla eftir því og geri athugasemdir við það ef hæstv. dómsmálaráðherra, sem er ekki bara yfirmaður einnar stofnunar eins og á við um aðra aðra ráðherra og undirstofnanir þeirra — hæstv. dómsmálaráðherra er æðsti yfirmaður lögreglunnar. Það er grundvallarmunur á þeirri stöðu og stöðu annarra ráðherra sem fara með yfirstjórnarvald yfir öðrum stofnunum, undirstofnunum sínum. Þess vegna ítreka ég spurninguna hvað hæstv. ráðherra hafi gert til að fá upplýsingar um það hvenær nákvæmlega lögreglan og ríkissaksóknari urðu þess fyrst áskynja að þessi gögn væru þarna úti og um umfang þeirra. Ég bendi á það að mál virðast vera fyrnd hér og það er auðvitað mjög alvarlegt ef það er þannig að þau eru fyrnd vegna vanrækslu embættanna í þessu máli.