156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

rannsókn á störfum ríkissaksóknara.

[10:50]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég átta mig ekki á hvaða ræðu þingmaðurinn var að hlusta á. Mín afstaða er skýr. Ég svaraði þingmanninum með skýrum hætti. Ég lít þetta mál mjög alvarlegum augum. Ég hef tjáð mig um það opinberlega. Ég er að tjá mig um það núna hér í þessum þingsal að ég lít þetta mál mjög alvarlegum augum, hér er um alvarleg mál að ræða. Að hún ætli að vitna í einhverja aðra aðila og heimfæra þær skoðanir upp á mig — ég bara átta mig ekki á því hvað þingmaðurinn er að fara. Málin eru til skoðunar. Málin eru til rannsóknar hjá tveimur opinberum aðilum. Þannig liggur í málinu núna og það er hinn eðlilegi upphafsvettvangur þessara mála. (Gripið fram í.) Mín afstaða til alvarleika málsins er algerlega skýr. Ég ætla ekki hlusta á annað. (SÁA: Svara spurningunni.)