156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

lesskilningur ungmenna.

[10:51]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Nú er lesskilningur grunnskólabarna, sem er grunnforsenda þess að búa í lýðræðissamfélagi, botnfrosinn. 40% nemenda eru ekki með grunnfærni í lesskilningi eftir tíu ára skyldunám. Það er bæði brot á markmiðagrein grunnskólalaga og svik við nemendur, foreldra og samfélagið allt. Með þessu er verið að svipta grunnskólabörn tækifærum til lífsgæða til frambúðar, því að lengi býr að fyrstu gerð, og þetta er líklega grunnforsenda mikils brottfalls á framhaldsskólastiginu. Ef staðan væri þessi í einhverju öðru kerfi en menntakerfinu væri löngu búið að bregðast við. En af því að þetta eru börn þá virðist þetta ekki skipta máli.

Ísland hefur allar forsendur til þess að vera með afburðaárangur í grunnskólunum. Við erum með vel fjármagnað kerfi, fimm ára kennaranám, tæknivædda grunnskóla, vel menntað bakland og erum ein ríkasta þjóð í heimi. Ég vil því spyrja hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hvers vegna 40% nemenda útskrifist eftir tíu ára skyldunám án þess að vera með grunnfærni í lesskilningi. Spurningin er einföld og hún er bara ein: Hvers vegna útskrifast 40% nemenda úr grunnskóla eftir tíu ára skyldunám án þess að vera með grunnfærni í lesskilningi? Hvers vegna?