156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

lesskilningur ungmenna.

[10:53]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrirspurnina. Ég verð nú bara að byrja á því að spyrja: Bíddu, hvar hefurðu verið? [Hlátur í þingsal.] Hverjir hafa verið að stjórna hérna? Við í ríkisstjórninni? Nei. Aftur á móti erum við verkstjórn og ætlum að taka til hendinni. Þinn flokkur hefur verið völd undanfarna áratugi þannig að ég spyr: Hvað voruð þið að gera? Þú getur kannski svarað því á eftir en ég ætla að benda á hvað við erum að gera. Við erum að breyta kerfinu. Við erum að fara að taka upp samræmt mat. Það eru 14 ný samræmd próf í lesskilningi og stærðfræði sem eru núna í þróun. Við erum búin að leggja fyrir 7.000 börn í 26 skólum tilraunaverkefni sem verið er að fullvinna núna og það er stefnt að því næsta vor að taka í gagnið samræmt kerfi til þess að fylgja barninu frá upphafi til enda, frá 4.–10. bekkjar. Við ætlum að vera með kerfi sem grípur börnin strax, fyrir utan það að ég fór í mína fyrstu heimsókn út á land til Vestmannaeyja og kynnti mér þar Kveikjum neistann, frábært kerfi sem er einmitt hannað til að hjálpa börnum að lesa. Það er kerfi sem er byggt upp einmitt til að hjálpa þessum einstaklingum. Það er svo frábært að ég hefði viljað hafa það í skóla þegar ég var; byrja daginn á að hlaupa, á hreyfingu, 40 mínútur síðan í kennslu, fá að velja hvað þau ætla að gera í lok dagsins sem verður gaman. Þess á milli er kennsla í lestri. Og hvert ættum við að leita ef við ætlum að hjálpa einhverjum að lesa? Það er til þeirra sem standa sig best, Finnlands. Við erum búin að leita þangað. Ég næ ekki að skýra það út í þessu svari en vonandi í næsta svari að við erum á réttri leið.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hæstv. ráðherra á að ávarpa forseta og aðra þingmenn í þriðju persónu.)