156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

staða sérsveitar ríkislögreglustjóra.

[10:59]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar hér í dag að beina orðum mínum að og eiga orðaskipti við hæstv. dómsmálaráðherra út af stöðunni í lögreglunni sem ég þekki ansi vel hafandi verið þar í mörg ár. Ég ætla nú ekki að fara yfir það mál sem helst brennur á okkur hér í dag, ég ætla að fara aðeins út fyrir það. Það sem mig langar að gera að umtalsefni hér er staða sérsveitar ríkislögreglustjóra, sem ég þekki sömuleiðis ágætlega til. Ég verð að segja að eftir að hafa talað við mína fyrrum kollega og vini þar inni þá hef ég orðið verulegar áhyggjur af þeirri stöðu sem er að teiknast upp þar. Árið 2024 fór sérsveit ríkislögreglustjóra í 470 vopnuð útköll auk þess að sinna gríðarlega mörgum og flóknum öryggisverkefnum sem henni eru falin. Í dag eru 46 sérsveitarmenn starfandi en það er heimild fyrir 56. Það er töluvert síðan þessi heimild var veitt og ég veit að ríkislögreglustjóri hefur verið að vinna að því að reyna að ná þessari tölu upp í þessa 56 sem ríkislögreglustjóri hefur í raun og veru heimild til þess að hafa í sérsveit. Hins vegar er fjárveitingin einungis fyrir 46. Staðan er þannig þar innan búðar að þessi deild er rekin með tapi í hverjum mánuði og það sem vakti mig til umhugsunar um þetta mál allt saman núna síðast var að nýliðanámskeið ríkislögreglustjóra var blásið af út af fjárskorti sem þýðir að möguleikar á endurnýjun inn í þessa mjög svo mikilvægu stofnun okkar verða takmarkaðir. Mig langar að heyra aðeins hvað hæstv. dómsmálaráðherra hyggst gera í þessu máli.