156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

staða sérsveitar ríkislögreglustjóra.

[11:03]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra kærlega fyrir nokkuð greinargóð og skýr svör. En ég spyr, virðulegur forseti: Skildi ég þá hæstv. ráðherra rétt að ríkisstjórnin og ráðherrann ætli í raun og veru að lyfta stöðugildum sérsveitar upp í 56 eins og heimild er fyrir? Er það réttur skilningur minn eða ætla menn ekki að stíga það skref til fulls? Ég hlakka bara til að fá að sjá þennan fjárauka þar sem á að leiðrétta þessa skekkju.

Mig langar hins vegar líka aðeins að spyrja, af því að hæstv. ráðherra fór hér inn í loforð um fjölgun lögreglumanna — sem kom mjög snemma held ég, í janúar eða febrúar, og við höfum ekki séð neitt af enn þá en ég bind miklar vonir við vegna þess að þetta er gríðarlega mikilvægt — og talaði um Lögregluskóla ríkisins og fjölgun inn í hann, sem er frábært. Það er þriggja ára nám, virðulegur forseti. (Forseti hringir.) Hvað ætlar hæstv. ráðherra að gera þar til?