svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Virðulegi forseti. Það eru misalvarleg málin sem við ræðum hér á hv. Alþingi. Ég vil bara vekja athygli á því að hér var hv. þm. Sigríður Andersen að tala um grafalvarlegt mál sem kallar á það að hv. Alþingi skoði það og láti sig það varða. Ég held að þetta sé ekki tíminn fyrir hæstv. ráðherra að vera með pirring út í hv. þingmann því að málið er bara miklu stærra en svo. Og réttmætar ábendingar sem komu fram hjá hv. þm. Sigríði Andersen eru ekki eitthvert dægurmál eða eitthvert mál sem má einhvern veginn hverfa svona inn í klikk-internetsamband samtímans. Þetta er mál sem við þurfum að taka af fullri alvöru og ég hvet hæstv. ráðherra og hv. Alþingi til að gera það því að ég held að allir sem skoða málið sjái alvarleika þess.