svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Frú forseti. Ég heyrði yður nefna að þetta mál hefði verið rætt í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og skárra væri það nú. Það er hins vegar mjög mikilvægt að nefndin taki þetta mál almennilega fyrir. Það kallar á raunverulega rannsókn á því sem þarna hefur gengið á því að þetta er, eins og hæstv. ráðherra þó viðurkennir, mjög alvarlegt mál. En hver á að gæta varðanna? Hver á að rannsaka það sem úrskeiðis hefur farið? Eru það þeir sem voru sjálfir starfandi á því sviði þar sem hlutirnir fóru úrskeiðis? Það er varla. Nú kemur til kasta Alþingis og ekki hvað síst stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þess.
Hvað varðar athugasemdir hæstv. ráðherra hér í umræðu um fundarstjórn forseta þá telst það nú varla svar við fyrirspurn um svona alvarlegt mál að segjast einfaldlega taka það alvarlega. Þegar spurt er: Hvað ætlarðu að gera? Hver verða viðbrögðin? þá dugar ekki að segja bara: Ég tek þetta alvarlega.