svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir að upplýsa okkur um að málið hafi verið rætt í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ég er varamaður þar þannig að ég er ekki með puttann á púlsinum um hvað á sér stað á fundum sem ég sit ekki. En það skiptir auðvitað máli að málið verði ekki bara rætt milli nefndarmanna þess efnis að það hafi komið upp. Það þarf að leiða þetta í jörðu. Alvarleiki málsins er með þeim hætti að ég hvet virðulegan forseta til að hlutast til um það, í samstarfi við formann stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, að þetta fái sem mestan forgang eins og gögn málsins gefa tilefni til og leyfa hvað störf nefndarinnar varðar. Þetta er mál þeirrar gerðar að það verður ekki við það unað að bent verði fingri á alla aðra en þá sem rætt er við hverju sinni.