svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Virðulegi forseti. Ég sit í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Frá því að þetta mál kom upp í síðustu viku hafa átt sér stað óformleg samtöl á milli nefndarmanna og skilningur okkar var að hinkra aðeins af því að við vissum að það væri von á frekari upplýsingum um þennan stóra gagnaleka, sem komu svo fram í gærkvöldi. Nú þegar hefur meiri hlutinn ákveðið að funda um þetta mál í dag óformlega og við teljum að næsta skref sé að ræða svo við formanninn um það hvernig nefndin mun beita sér. Hún hefur eðlilega eftirlitshlutverk en hún kemur ekki að rannsóknum sem eru þegar í gangi. Eins og hæstv. dómsmálaráðherra hefur komið inn á þá er stjórnsýslan nú þegar tekin við sér og farin að rannsaka málið þannig að hv. nefnd þarf að finna flöt á því hvar hún kemur að málinu. En við erum sannarlega meðvituð um alvarleika þessa máls.