156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:16]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Frú forseti. Það mál sem við erum að ræða hér er mjög alvarlegt og það hefur greinilega haft í för með sér að traust til lögreglunnar hefur dvínað. Við megum ekki við því að traust til lögreglunnar dvíni og þess vegna þarf að taka á þessu máli fljótt, örugglega og vandlega vegna þess að þegar traust til lögreglu dvínar er öll lögreglan undir. Ég fullyrði það sem gamall samstarfsmaður lögreglunnar og góðkunningi að lögreglumenn og konur vinna upp til hópa verk sín af samviskusemi og oft við erfiðar aðstæður. Það er ekki síst þeirra vegna sem við þurfum að taka á þessu máli þannig að traust til lögreglunnar bíði ekki hnekki af þessu máli sem er virkilega alvarlegt og líklega eitt það alvarlegasta sem maður hefur heyrt um úr þessum ranni.