156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:17]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er gott að heyra að það er full samstaða í þinginu um alvarleika málsins og að menn vilji skoða málið. Ég hjó hins vegar eftir því að hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, upplýsir okkur um það að málið er strax komið í einhverjar pólitískar skotgrafir með óformlegum fundum meiri hluta nefndarinnar. Málið átti að sjálfsögðu að vera rætt strax á fyrsta fundi fyrir síðustu viku og ákveðið að taka málið lengra en ekki bíða eftir einhverjum frekari upplýsingum um gagnaleka. Það skiptir miklu máli að tímalína liggi fyrir í þessu og það bendir til mjög alvarlegs þáttar í þessu máli, sem ég dreg ekki í efa, að hæstv. dómsmálaráðherra hafi fengið að vita af málinu sama dag og frétt um þetta er spiluð á RÚV og þó liggur fyrir að a.m.k. einhver fórnarlömb í málinu hafi fengið að vita af því og ég spyr þá: Væntanlega frá RÚV, ekki frá lögreglunni? Mér finnst með ólíkindum ef það er þannig að lögreglan ætli að halda því fram að hún hafi verið að frétta fyrst af málinu í Kveiksþætti fyrir viku. Þetta þarf að liggja fyrir hið fyrsta. Ég hvet alla hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til að sameinast um málefnalega umræðu um þetta en ekki minni hluta og meiri hluta. Þetta mál er miklu alvarlegra en svo.