svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað gott þegar það er fullyrt hér að allir hafi af þessu áhyggjur en mér finnst hins vegar fyrstu skrefin í þessu ekki vera góð. Hugmyndin er ekki sú að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sé stýrt af meiri hluta ríkisstjórnarflokkanna. Og án þess að ég ætli að gera það neitt of erfitt þá er skrýtið að heyra það hér úr ræðustóli að ríkisstjórnarflokkarnir hafi verið að véla um þessi mál án þess að taka það upp í nefndinni. Við skulum vona að þetta séu bara ákveðin mistök til að byrja með. Málið er af þeirri stærðargráðu að það þarf ekki bara að segja að menn líti það alvarlegum augum, það þarf að ganga þannig fram að íbúar þessa lands geti lifað öruggir með það að þegar svona mál koma upp, sem við viljum ekki sjá, sé farið með þau þannig að áfram geti ríkt traust til stofnana þjóðfélagsins. (Forseti hringir.) Þar er Alþingi Íslendinga í lykilhlutverki. Það á ekki að gera lítið úr þessu og það á ekki að tala niður til þeirra hv. þingmanna sem (Forseti hringir.) gera það sem er það eina rétta, að taka upp málið.