svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Frú forseti. Þetta mál hefur ekki verið formlega tekið fyrir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og auðvitað þarf að gera það. Ég vil taka undir orð hv. þm. Sigríðar Á. Andersen. Auðvitað þarf hæstv. ráðherra dómsmála að upplýsa það sem fyrst og afla upplýsinga um það hvenær menn vissu fyrst af þessu, hvenær lögregluyfirvöld og yfirvöld saksókna vissu fyrst af þessu og til hvaða ráða þau brugðu. Það þarf auðvitað einnig að skoða innan löggæslunnar í stóra samhenginu hvernig eyðingu gagna er háttað eftir að þeirra hefur verið aflað eða þau notuð og þau eru ekki lengur þörf og einnig starfsmannastefnuna og bara almennt séð hvernig það er afgreitt þegar menn eru ráðnir inn og þegar þeir yfirgefa stofnanir, hvernig lögregla fer með slík mál. Auðvitað er þetta alvarlegt mál en það er ekki nóg, það þarf að bregðast við (Forseti hringir.) og það þarf að líta til baka með gagnrýnum augum.