156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:22]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Ég tel ástæðu til að minna hæstv. forseta á mikilvægi þess að bregðast við því sem kom fram hér áðan. Hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir lýsti því að meiri hlutinn, fulltrúar meiri hlutans í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, hefðu hist til að ræða þetta mál og svo myndu þeir útskýra fyrir formanni nefndarinnar hvernig tekið yrði á því. Þetta var ekki tilgangurinn með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Það var meira að segja svo að þegar henni var komið á var gert ráð fyrir að þar yrði minni hlutinn með meiri hluta. Hæstv. forseti hlýtur að bregðast við þessu sem kom, eins og hæstv. forseti lýsti hérna áðan, forsetanum sjálfum á óvart. Ég legg áherslu á það að nefndin eða nefnd á hennar vegum til að rannsaka þessi mál fái allar upplýsingar um málið og að Alþingi þurfi ekki að bíða eftir því að Ríkisútvarpið ákveði hvað og hvenær verði upplýst um í málinu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)