svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Virðulegur forseti. Þegar maður kemur svona seint inn í fundarstjórn þá er búið að segja flest allt sem maður ætlaði að segja. En mig langaði bara að taka undir orð hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem kom hér upp á undan mér að það er afar mikilvægt að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vinni þetta saman þvert á meiri og minni hluta. Þetta er mál af þeirri stærðargráðu að við þurfum að sýna samstöðu í þinginu til að geta einmitt sýnt þjóðinni það að við leggjum allt okkar af mörkum til að við getum treyst lögreglunni í landinu og þeim sem fer með æðsta valdið. Við í Framsókn erum reiðubúin til að leggja okkar af mörkum til þess að efla það traust. En það er mikilvægt að við fáum einmitt upplýsingar á sama tíma, að hér sé ekki verið að funda í lokuðum herbergjum, meiri hlutinn, heldur séum við að vinna þetta í sameiningu. Þannig náum við árangri og það er gríðarlega mikilvægt í þessu stóra máli.