156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:25]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil fyrst þakka dómsmálaráðherra fyrir skýr og afdráttarlaus svör varðandi alvarleika málsins og næstu skref, því sem lýtur að dómsmálaráðuneytinu og nefnd um eftirlit með störfum lögreglu. Ég vil líka þakka fyrir upplýsingar um að málið verði, kannski getum við sagt að sjálfsögðu, tekið fyrir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og fagna þeirri breiðu samstöðu sem er um það. Þar þarf að vanda til verka en þetta er líka brýnt mál. Ég held að það takmarkist ekki við einn Kveiksþátt eða eitt mál þar sem auðmaður, Björgólfur Thor Björgólfsson, fékk fyrirtækið PPP til að rannsaka og greiddi fyrir það 33 millj. kr. Það liggur fyrir í málinu og upplýsingar bárust um það að félagið Milestone fékk sama félag á sínum tíma til að reyna að hafa áhrif á rannsókn og saksóknir mála (Forseti hringir.) í tengslum við hrunið og stærsti viðskiptavinur PPP var Samherji sem greiddi 135 milljónir fyrir hluti sem við vitum ekki enn þá nákvæmlega hverjir voru. (Forseti hringir.) Mér finnst mjög mikilvægt að allt þetta verði upplýst vegna þess að hér er um að ræða nýjan þátt í þjóðlífinu (Forseti hringir.) þar sem fjársterkir aðilar kaupa rannsóknarfyrirtæki til að vinna að hagsmunum sínum bak við tjöldin. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

(Forseti (ÞSv): Forseti bendir hv. þingmönnum á að í fundarstjórn forseta hafa þeir eina mínútu, ekki eina og hálfa.)