svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Virðulegi forseti. Í ljósi þess sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir gaf í skyn hér um að við hefðum einhverja upplýsingar sem ekki aðrir hefðu mögulega þá langar mig bara að árétta að þetta kom fram í Kveiksþættinum, að von væri á frekari upplýsingum út frá þessum stóra gagnaleka. Það var á þeim forsendum sem ég sagði það sem ég sagði hér fyrr í ræðustól. Hitt er annað að næsti fundur. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er ekki fyrr en eftir helgi og í ljósi alvarleika málsins var okkur mál að hittast og eiga samráð um þetta mál. En að sjálfsögðu myndum við bara fagna því ef formaður myndi boða til aukafundar strax í dag til að ræða þetta mál saman, öll nefndin í heild. Samstarfið í nefndinni hefur verið gott og ég sé ekki annað en að þetta verði bara tekið á góðum samstarfsgrundvelli áfram eins og hefur verið.