156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:28]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Þessi umræða hefur verið ágæt en ég vil samt minna þá hv. þingmenn sem hafa komið upp og reynt að gera þetta að einhverju minni hluta eða meiri hluta báli. Þetta snýst ekkert um það. Þetta er miklu alvarlegra mál en svo og ég segi: Það er að túlka það að menn hafi átt einhver samtöl um þetta mál í á versta veg eða gera það eitthvað tortryggilegt. Mér finnst það ekki sanngjarnt og ég get sagt að sá sem hér talar, hann hefur rætt þetta m.a. við ritara nefndarinnar. Við erum bara að reyna að finna flöt á þessu máli. Það er ljóst að þetta gæti alveg eins heyrt undir allsherjarnefnd, þetta mál, vegna þess að þetta eru um störf lögreglunnar og ég held að við ættum að reyna að tóna þessa umræðu aðeins niður í ljósi alvarleika hennar og einnig að skoða þetta í skýrara ljósi. Við erum hér að ræða um innlend fyrirtæki, njósnafyrirtæki, en þetta gæti alveg eins átt við um erlenda aðila þannig að þessi umræða er mjög nauðsynleg og þörf og ég held að við ættum að reyna að halda þessari umræðu og vera ekki að toga og teygja orð hvers annars út á ystu nöf.