svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Virðulegur forseti. Það kemur mér svolítið á óvart, ég kom svolítið seint í þingsalinn í dag, að heyra þar um störf stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, verandi formaður, án þess að vita hvað þar er á dagskrá. Ég hef nú sjálfur verið skammaður í nefndinni fyrir það að nefndarmenn hafi frétt það annars staðar en í nefndinni hvað væri þar á dagskrá til umræðu, þannig að þetta kemur mér verulega á óvart. Við höfum fyrst og fremst eftirlit með framkvæmdarvaldinu í grunninn en getum tekið stærri ákvarðanir líka svo sem og eftir umræðuna hér í dag sýnist mér einboðið að við þurfum að fara að hefja þá vinnu í þessu máli. Ég legg það til, virðulegur forseti, að við gerum bara hlé á þessum þingfundi síðar í dag og höldum fund í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þar sem meiri hlutinn getur þá rætt við okkur í minni hlutanum og sagt formanninum hvernig þau vilja haga þessu máli. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)