156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[11:31]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér fyrir ári síðan sagði þáverandi hv. þingmaður í umfjöllun um þau lög sem við erum að breyta örlítið núna, hv. þm. Oddný G. Harðardóttir:

„Með því frumvarpi sem við ræðum hér er ekki einungis lagt til að lögin um Bankasýsluna verði felld úr gildi heldur einnig lögin um sölumeðferðina. Eftir er skilið tómarúm sem hæstv. núverandi fjármálaráðherra getur nýtt sér að vild …“

Hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson, sem nú er orðinn hæstv. ráðherra, sagði:

„Það er sem sagt verið að fella brott með einu pennastriki lagarammann sem hefur gilt núna í 12 ár um sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum án þess að það komi nein almenn lög um þessi atriði í staðinn þannig að eftir stendur lagalegt tómarúm.“

Hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, sem nú er jafnframt hæstv. ráðherra, fór mikinn. Hún sagði: Er þetta fyrirkomulag trúverðugt? Er það boðlegt að sýsla svona með verðmiklar eigur almennings? Hún sagði jafnframt að það væri best að ríkisstjórnin væri sjálf með puttana í sölunni. Engar reglur um armslengd, ríkari aðkoma Alþingis, sem var sögð nauðsynleg við þessa sölu. Niðurstaðan er ríkari aðkoma ráðherrans sjálfs. Þegar sest er í stólana þá virðist lagalega tómarúmið vera uppfyllt og trúverðugleikinn vera allur.