156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[11:32]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er auðvitað vandræðalegt að sjá hæstv. ríkisstjórn, sem fór hér með himinskautum í þingsal og var svo á móti þessu máli sem er eitt af þeim fáu málum sem þarf að koma í gegn núna, að bara um leið og þau koma í ríkisstjórn þá breytist allt og öll stóryrðin, þau eru bara farin. En það er bara gott, ég er ekki að skamma hæstv. ríkisstjórn. Það er bara gott þegar fólk áttar sig á hlutunum. En líka hefur nú verið svolítið sérstakt að vera hér eftir að ný ríkisstjórn tók við vegna þess að stjórnarliðar hafa alla jafna ekki látið sjá sig í umræðum í þinginu fyrir utan eitt mál. Og síðan á samfélagsmiðlum er kvartað undan stjórnarandstöðunni.

Virðulegi forseti. Þetta er enn eitt málið sem stjórnarandstaðan er nú að hjálpa ríkisstjórninni með hratt og örugglega í gegnum þingið. Þetta er bara prýðilegt mál og ánægjulegt að sjá enn eina U-beygjuna hjá ríkisstjórnarflokkunum. Megi þær verða fleiri.