156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[11:34]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er tekið gott og mikilvægt skref í að minnka, draga úr eignarhaldi ríkisins á íslenskum fjármálamarkaði. Það er mikilvægt að klára þetta skref sem hér er tekið. Í samanburði við þau lönd sem við helst berum okkur saman við hefur eignarhluti ríkisins hvergi verið hærri í fjármálafyrirtækjum, bönkum, en hér á landi eða um 70%. Fer ekki hærra. Hér er tekið mikilvægt skref í að draga úr eignarhaldi ríkisins og því ber auðvitað að fagna. Því ber að fagna sérstaklega stuðningi hv. þingmanna Flokks fólksins við frumvarpið. Það er ánægjulegt að sjá þennan ótrúlega viðsnúning sem hefur orðið þar á bæ. Vel gert, hv. þingmenn Flokks fólksins.