ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Frú forseti. Ég er algjörlega miður mín yfir því að við séum að selja Íslandsbanka. Ég er algjörlega miður mín yfir því núna eins og ég var þá. Það hafa engar U-beygjur verið teknar hvað það varðar hjá Flokki fólksins, enda eru gleðifréttirnar þær að það er Flokkur fólksins sem var alveg grjótharður í því að það yrði ekki haldið áfram á þeirri vegferð og Landsbankinn okkar verður svo sannarlega ekki seldur í tíð þessarar ríkisstjórnar.
En hvers vegna erum við að selja Íslandsbanka? Það er engu líkara en hv. þingmenn fyrri ríkisstjórnar átti sig ekki á því að það er í fjárlögum gert ráð fyrir því, fjárlögum sem við tókum við ásamt þeim hallarekstri sem við fengum í fangið frá fyrrverandi ríkisstjórn, [Háreysti í þingsal.] að við fengjum tugi milljarða fyrir söluna á Íslandsbanka …
(Forseti (ÞSv): Gefið ræðumanni hljóð.)
Og það er nákvæmlega það veganesti sem við tókum við og sem ég með gallbragð í munni er að samþykkja hér í dag, með gallbragð í munni. Og ég segi það enn þá: Það er óðs manns æði að taka gullgæsina, höggva af henni höfuðið og henda henni á grillið þegar hún er að mala gull fyrir samfélagið eins og Íslandsbanki hefur gert.