156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[11:38]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta verður áhugaverð atkvæðagreiðsla, að horfa á hina samhentu ríkisstjórn ganga til atkvæðagreiðslu um þetta litla mál, litla mál sem ég var með í höndunum nákvæmlega svona í lok október og hefði væntanlega klárað og þá með rauðum atkvæðaseðlum frá Flokki fólksins og Samfylkingunni, Viðreisn hefði setið hjá. Nú ætla þau að segja já, öll með tölu, á grundvelli laga sem þau greiddu atkvæði gegn í júní 2024. Það er innan við ár síðan. Það skiptir engu máli hvort menn hafa gall í hálsinum eða ekki, menn hafa skipt um skoðun vegna þess að það er skynsamlegt. Það var bara pólitískt upphlaup sem var í gangi hér fyrir einu ári. Eða hver er önnur skýring á þessum líka litla viðsnúningi, ekki bara Flokks fólksins heldur líka Samfylkingar og Viðreisnar?