156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[11:39]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér erum við að fara að greiða atkvæði um mjög mikilvægt mál fyrir samfélagið. Það er gott og blessað að skipta um skoðun í pólitík, eða jafnvel bara alls ekki en styðja það samt af þeim ástæðum sem liggja fyrir hjá viðkomandi þingmönnum og þurfa allir að eiga við sína sannfæringu. Ég vil hins vegar nefna það hér að það er auðvitað alvarlegra þegar það blasir við að viðsnúningur sá er einungis af popúlískum rótum runninn. Umræðan um hlutlæga þætti málsins, eins og t.d. um afslátt, sem tók margar klukkustundir, ef ekki daga, með slíkum gífuryrðum af hálfu hv. þingmanna hér í dag, stjórnarliða, hæstv. ráðherra, er með ósköpum. Að þau sjái ekki sóma sinn í því að koma og útskýra, biðjast afsökunar á ummælum sínum, er með ólíkindum. Til upplýsingar nefni ég hér að með sömu rökum var hinn meinti afsláttur, meinti gjafagerningur, öll spillingin, þessi hrikalegi afsláttur sem var talað hér um í margar klukkustundir — með sömu rökum er sá afsláttur sem er í sölunni sem er handan við hornið miklu meiri núna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)