156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[11:41]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við urðum vitni að sennilega undarlegustu atkvæðagreiðslu-ræðu sem ég hef séð á þeim tíma sem ég hef verið hér á þingi, frá hæstv. félagsmálaráðherra, sem í raun lýsir því að þingmönnum Flokks fólksins stendur ekki til boða að greiða atkvæði í þessu máli samkvæmt sannfæringu sinni.

En varðandi þetta mál þá hefur Miðflokkurinn, eins og þekkt er, verið þeirrar skoðunar að rétt hefði verið að afhenda eftirstæðan hlut í Íslandsbanka raunverulegum eigendum: fólkinu í landinu. Sú leið hefur verður ekki farin, það liggur fyrir. Það voru aldrei áform um að hlutur í Íslandsbanka væri til lengri tíma í bókum ríkissjóðs. Þannig að við styðjum hér eftir sem hingað til við það að ríkissjóður losi sig við þennan eignarhlut og þá með sölu í þessu tilviki. Hér eru ýmis áhættuflögg sem flagga. En mér sýnist vera farin leið sem enginn ríkissjóður í Evrópu hefur farið í sambærilegu máli (Forseti hringir.) og það hefði verið skynsamlegt að skoða það með ítarlegri hætti, að ég met. (Forseti hringir.) En þingflokkur Miðflokksins mun styðja við það að þetta mál fari hér á milli umferða. (Forseti hringir.) Ég vona að vel takist til en það er svona ákveðinn uggur sem fylgir þeirri útfærslu sem hér hefur verið valin.