ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegi forseti. Það var alveg ljóst að þetta yrði alltaf svolítið sérstök stund en þetta er bara orðin mjög söguleg stund. Atkvæðaskýring formanns Flokks fólksins er bara eitthvað sem hlýtur að fara í sögubækurnar. (Félmrh.: Ég vona það.) Hér kemur formaður Flokks fólksins og segir: Heyrðu, nei, við höfum ekki skipt um neina skoðun og við ætlum að setja gullgæsina grillið en með óbragð í munni. (Gripið fram í: Það verður að jarða hana …) — Já, já. Hvers konar fyrirbæri er þessi ríkisstjórnarmeirihluti? Hér koma hæstv. ráðherrar og segja, eins og þeir geti ekki breytt lögum: Ja, þið voruð búin að ákveða þetta. — Í alvöru?
Virðulegi forseti. Þetta kallar á miklu betri útskýringar. Er það þannig að hæstv. ríkisstjórn sé á móti sínum málum? (Gripið fram í: Já, já.) Og er ekki með neinar smá yfirlýsingar: gullgæsina á grillið, hvorki meira né minna. Við segjum já við því. (Gripið fram í.) Erum algerlega á móti því. (Gripið fram í.)
Virðulegur forseti. Þú getur ekki ýkt þetta. Vesalings Spaugstofan, hún getur ekkert unnið úr þessu. Hún verður bara að vera með beina útsendingu.