ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegur forseti. Þetta er eiginlega algerlega með ólíkindum. Ég sá mig bara knúinn til að fara hér í pontu og taka þátt í þessari umræðu hérna. Þetta er svo sem ekkert nýtt en þarna fór þetta eiginlega út fyrir öll velsæmismörk, þessi atkvæðaskýring hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra: Við erum hér með fjárlög. Þess vegna ætlum við að gera þetta. Við fengum þessi vondu fjárlög í arfleifð frá hinni vondu ríkisstjórn sem við tókum við. (Félmrh.: Satt.) Rétt. Af hverju breytið þið þá ekki fjárlögunum? Þið studduð þau ekki einu sinni og þið hafið varla breytt stafkrók í þeim og það er kominn 8. maí. Breytið þið fjárlögum, þið eruð ríkisstjórnin. (Félmrh.: Þetta er reyndar …) Breytið, gerið fjárauka, komið með fjárauka. Annað eins hefur nú verið gert. Fjárlög sem þið studduð ekki sjálf, voru algerlega vonlaus. Þið hafið ekki breytt stafkrók í þeim. Breytið þessu ef þið viljið breyta þessu. Ekki skýla ykkur á bak við þetta. Þetta er vonlaus afsökun.