156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[11:46]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég hlakka mikið til að vera á græna takkanum í þessari atkvæðagreiðslu. Ég er hlynntur því að selja banka. Ég hef alltaf verið hlynntur því að selja banka og þá sérstaklega Íslandsbanka og ég veit ekki betur en að það hafi alltaf verið í stefnu Viðreisnar. Ég var ekki í þeim þingflokki þá og mér skilst að að þær efasemdir sem þá voru uppi hafi fyrst og fremst snúist um traust til þáverandi fjármálaráðherra til að sjá um söluna. Ég treysti sjálfur hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra Daða Má Kristóferssyni til að gera það. Það er mjög kostulegt að sitja undir því að þingmenn séu að koma hérna upp og skamma fólk fyrir að kjósa með þeim hætti sem þau vilja að sé gert. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson talar um að hér sé eitthvað sögulegt að gerast. Það er ekki langt síðan að hann stóð hérna í ræðu og viðurkenndi það hafa greitt atkvæði með jafnlaunavottun á sínum tíma sem ráðherra með óbragð í munni. [Hlátur í þingsal.] (Gripið fram í: Heyr, heyr.)