156. löggjafarþing — 37. fundur, 8. maí 2025.
ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
173. mál
Virðulegur forseti. Ég styð þetta mál en það er greinilegt að Flokkur fólksins er búinn að kasta stefnu sinni út í hafsauga í þessu máli eins og öllum öðrum málum. Dýrir eru stólarnir, virðulegur forseti. Það er alveg ljóst að stefna Flokks fólksins hefur verið vegin og metin og léttvæg fundin.