ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegi forseti. Ég kom því ekki að í fyrri atkvæðaskýringu að við í Framsókn styðjum alla liði þessa máls, þessar litlu tæknilegu breytingar sem eru svona útfærslan á því frumvarpi sem varð að lögum í júní 2024 og allir núverandi stjórnarflokkar treystu sér ekki til að styðja. Og nú koma þeir hver á fætur öðrum með alls kyns undarlegar útskýringar. Ein er sú að það sé ekki hægt að breyta fjárlögum. Það stóð líka til að selja Íslandsbanka á árinu 2024. Það var ekki gert þannig að það þurfti að breyta fjárlögum, það þurfti að beita öðrum leiðum. Að sjálfsögðu getur núverandi ríkisstjórn gert það ef hún vill það, en staðreyndin er sú að þeir vilja það ekki. Þeir vilja bara gangast við því að þeir hafi haft rangt fyrir sér í júní 2024. Það þýðir lítið að koma hér og búa til eftiráskýringar þegar það liggja fyrir þrjú nefndarálit með ólíkum hlutum. Þannig er hins vegar að þegar við greiðum atkvæði þá eigum við að greiða atkvæði samkvæmt okkar bestu samvisku og við heyrum núna og sjáum bráðlega hver samviska stjórnarflokkanna er.